Persónuverndarstefna

Meðferð persónuupplýsinga

Hjá NEXUM ehf., kt. 450924-0160, Skútuvogi 3, 104 Reykjavík, sem er eigandi að gæludýraskráningarkerfinu IcePets er lögð rík áhersla á að tryggja áreiðanleika, trúnað og öryggi persónuupplýsinga.  

Persónuverndarstefnu þessari er ætlað að upplýsa þig um vinnslu félagsins á persónuupplýsingum, þ.á.m. hvaða persónuupplýsingum félagið safnar og með hvaða hætti það nýtir slíkar persónuupplýsingar. 

Persónuverndarstefna þessi á eingöngu við þegar félagið vinnur persónuupplýsingar sem ábyrgðaraðili í skilningi laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, t.d. þegar félagið vinnur persónuupplýsingar einstaklinga sem eiga í viðskiptum við félagið, tengiliða sem koma fram fyrir hönd lögaðila sem eiga í viðskiptum við félagið eða umsækjenda um störf hjá félaginu.

Persónuverndarstefna þessi nær ekki til vinnslu félagsins á persónuupplýsingum sem fer fram í tengslum við veitingu á upplýsingatækniþjónustu til lögaðila. Við slíkar aðstæður telst viðskiptavinur félagsins ábyrgðaraðili að vinnslu persónuupplýsinga, en félagið kemur þá fram sem vinnsluaðili fyrir hönd viðskiptavinarins og vinnur félagið slíkar upplýsingar á grundvelli samnings við viðskiptavin. 

Vinnslulýsingar
Hér má finna lista yfir þær vinnslur persónuupplýsinga sem NEXUM kann að hafa með höndum í tengslum við hverja og eina þjónustu sem NEXUM kann að veita viðskiptavinum.

Athuga skal að hér er um að ræða lýsingu á öllum helstu þjónustum NEXUM („vinnsluaðila“) og því eiga ekki allar lýsingar við um hvern viðskiptavin („ábyrgðaraðila“), heldur aðeins lýsingar á þeim þjónustum sem ábyrgðaraðili kaupir af vinnsluaðila hverju sinni.

Eðli og tilgangur vinnslu ræðst af þjónustulýsingu í þjónustusamningi/um sem aðilar hafa gert sín á milli. Oftast er ýmist um að ræða vinnslu sem felst í hýsingu vinnsluaðila á persónuupplýsingum ábyrgðaraðila og/eða mögulegum aðgangi vinnsluaðila að persónuupplýsingum ábyrgðaraðila í tengslum við þá tæknilegu aðstoð sem vinnsluaðili veitir ábyrgðaraðila.

1. Almenn ráðgjöf og þjónusta

1.1. Tilgangur og eðli vinnslu
NEXUM veitir fagþjónustu á sviði upplýsingatækni við ráðgjöf, kerfishönnun, forritagerð, uppsetningarvinnu á búnaði, uppsetningu eða breytingar á hugbúnaði, viðhald búnaðar og annað sem tilgreint er í samningi við þjónustukaupa. Þjónustan kann að vera í stöðluðu formi eða aðlöguð að aðstæðum hverju sinni.

Til þess að geta veitt þjónustuna kann NEXUM að þurfa aðgang að persónugreinanlegum upplýsingum þjónustukaupa.

1.2. Flokkar skráðra einstaklinga og flokkar persónuupplýsinga
Þær persónuupplýsingar sem NEXUM kann að fá aðgang að geta verið ólíkar eftir eðli starfsemi þjónustukaupa og þeirrar þjónustu sem NEXUM veitir þjónustukaupa hverju sinni. NEXUM er óheimilt að vinna með persónuupplýsingar án fyrirmæla þjónustukaupa.

1.3. Miðlun upplýsinga utan EES
Engin miðlun utan EES á sér stað.

2. Vefhýsing

2.1 Tilgangur og eðli vinnslu
NEXUM (vinnsluaðili) hýsir vef þjónustukaupa (ábyrgðaraðila).

2.2 Flokkar skráðra einstaklinga og flokkar persónuupplýsinga
Allar persónuupplýsingar sem ábyrgðaraðili kann að setja sjálfur inn á sitt vefsvæði.

3. Afritun

3.1 Tilgangur og eðli vinnslu
NEXUM (vinnsluaðili) veitir þjónustukaupa (ábyrgðaraðila) þjónustu í formi afritunar og geymslu á gögnum. Gögn eru hýst í gagnaveri í Þýskalandi í ISO 27001 vottuðum gagnaverum.

3.2 Flokkar skráðra einstaklinga og flokkar persónuupplýsinga
Persónuupplýsingar ábyrgðaraðila sem afritaðar eru geta varðað alla flokka skráðra einstaklinga og persónuupplýsinga sem ábyrgðaraðili velur að afritaðar séu.

4. Tölvuský

4.1 Tilgangur og eðli vinnslu
NEXUM (vinnsluaðili) gefur þjónustukaupa (ábyrgðaraðila) aðgang að tölvuauðlindum sem vinna úr og/eða breyta gögnum fyrir þeirra hönd. Upplýsingum er ekki varanlega haldið eftir heldur eru þær eingöngu geymdar í vinnslu- og skyndiminni þjóna. Varanleg geymsla er í Gagnaskýi.

4.2 Flokkar skráðra einstaklinga og flokkar persónuupplýsinga
Gögn ábyrgðaraðila geta varðað einstaklinga og persónuupplýsingar úr öllum flokkum sem ábyrgðaraðili velur að vinna með í þjónustunni.